Í augum danska búðarsveinsins Thors Jensen var Ísland land tækifæranna þótt þau væru flestum öðrum hulin. Hann ákvað að láta slag standa og gerast Íslendingur. Thor hafði glöggt auga fyrir sóknarfærum og eftir að hafa þreifað fyrir sér í verslun sannfærðist hann um að framtíðin lægi í íslenskri stórútgerð. Í félagi við syni sína stofnaði hann togarafélagið Kveldúlf og lagði þar með hornsteinað einu mesta ættarveldi landsins – veldi Thorsaranna. Á blómatíma ættarinnar höfðu Thorsararnir mörg járn í eldi og þræðirnir lágu hvarvetna um samfélagið, útgerð, landbúnað, útflutningsverslun, utanríkisþjónustu og raunar æðstu stjórn. Eins og nærri má geta var litið upp til þeirra, en Thorsararnir áttu einnig fjölda öfundarmanna í viðskiptalífi og á vettvangi stjórnamálanna – óvildarmenn sem áttu þann draum æðstan að ganga á milli bols og höfuðs á þeim. Thorsararnir bárust á í einkalífinu en undir niðri sveimuðu ýmis fjölskylduleyndarmál – þar eins og annars staðar skiptust á skin og skúrir. Saga Thorsaranna er saga um ótrúleg auðæfi og takmarkalítil áhrif en einnig um misjöfn örlög.
Thorsararnir: Auður, völd, örlög
ISBN: 9979219912
ISBN 13: 9789979219910
Publication Date: 2006
Publisher: Almenna bókafélagið
Pages: 480
Format: Paperback
Author: Guðmundur Magnússon
Similar Books