Þegar Tara neyðist til að taka til í herberginu sínu rekst hún á dagbókina sína sem hefur verið týnd í fimm ár. Það var undarlegt að dagbókin skyldi týnast á sínum tíma, og enn undarlegra er að finna hana allt í einu undir rúmi. Það er eitthvað bogið við þetta, eitthvað sem Tara verður að komast að. En þótt Tara hafi ágætis hugmyndaflug þá órar hana ekki fyrir því sem á eftir að gerast. Áður en varir er sakleysi unglingsáranna að baki og nýr heimur blasir við.
Undur og örlög
ISBN: 9979720417
ISBN 13: 9789979720416
Publication Date: 2011
Publisher: Draumórar
Pages: 127
Format: Paperback
Author: Áslaug Ýr Hjartardóttir